Endurnýtum með ILM
Við höfum safnað saman kertaglösum sem viðskiptavinir hafa skilað til okkar, hreinsað þau vandlega og fyllt á þau.
Glösin geta borið smá ummerki um fyrra líf sitt, til dæmis örlitlar rispur, en kertið sjálft er nýtt og handgert hjá okkur.
Þú færð því sama góða ILM kertið á hagstæðara verði – og hjálpar okkur að draga úr sóun á fallegu glösunum okkar.
Takk fyrir að taka þátt í að endurnýta með okkur.
Athugið: Kertin í Endurnýtum með ILM koma ekki í kertakassa.