Skilmálar

Upplýsingar um seljanda
Seljandi er ILM Home ehf. kt. 600319-1910. VSK númer:134378.
Skyggnisbraut 2, 113 Reykjavík.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Ilm áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Ilm áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.
Frí heimsending gildir þegar verslað er fyrir meira en 10.000kr.
Sendingarkostnaður innan Íslands er kr. 790,- en til annara Evrópulanda er hann allt að 4000,- 
Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti. 

Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ilm ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Ilm til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 2-4 virkir dagar, fyrir vöru sem til er á lager.

Greiðsla 
Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:

Millifærsla. Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja það að millifæra. Millifærsla þarf að berast innan við 24 tíma frá pöntun.
Reikningsnr: 0370-26-600321 kt: 600319-1910
Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu. Er meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu.

Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Persónuupplýsingar
Lögð er áhersla á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

Um söfnun persónuupplýsinga:

Við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar til að:

  • Halda utan um og vinna með pantanir og vörukaup.

  • Auðkenna viðskiptavini.

  • Geta afhent keypta vöru, tilkynnt um stöðu pöntunar og til að geta haft samband við viðskiptavini okkar vegna spurninga eða upplýsinga um afhendingu.

  • Geta staðfest heimilisfang viðskiptavinar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.

  • Geta aðstoðað viðskiptivini við vöruskil og/eða kvartanir.

  • Hafa umsjón með aðgangi viðskiptavina að vefmiðlum okkar.

  • Hafa yfirlit með vörukaupum.

  • Hafa yfirlit um vöru- og greiðslusögu viðskiptavina.

  • Markaðssetja vörur með tölvupóstum, áminningum um gleymdar/geymdar innkaupakörfur og samfélagsmiðlum.

  • Eiga samskipti við viðskiptavini okkar í gegnum síma, tölvupóst eða aðra rafræna miðla.

  • Geta rannsakað kvartanir.

  • Uppfylla lagalegar skyldur á borð við öryggisskuldbindingar vegna vöru. Þurfi að innkalla vöru eða upplýsa viðskiptavini um öryggi vöru gætum við þurft að láta af hendi upplýsingar eða samskipti til almennings og/eða viðskiptavina.

  • Bæta þjónustu og vöruframboð okkar og auka öryggi fyrir viðskiptavini.

  • Koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar og koma í veg fyrir glæpi gegn fyrirtækinu.

  • Koma í veg fyrir ruslpóst og allar óleyfilegar aðgerðir.

  • Einfalda notkun á þjónustu með því að geyma upplýsingar um viðskiptavini, greiðsluleiðir, sendingarmáta og þess háttar.

Við söfnum og vinnum með eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn

  • Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)

  • Greiðsluupplýsingar (s.s. upplýsingar um færslur, dagsetningu færslna)

  • Greiðslusaga

  • Pöntunarsaga, s.s. hvaða vara var keypt og hvert hún var send.

  • Upplýsingar um vörukaup

  • Upplýsingar um tölvur viðskiptavina, síma eða önnur tæki sem viðskiptavinur notar og stillingar þeirra.

  • Upplýsingar um hvernig viðskiptavinur notar vefsíður og aðra rafræna miðla fyrirtækisins.

  • Gögn sem notandi býr til (t.d. smellir á vefsíðu og vefflettingar).

  • Hvernig vefsíður og vefmiðlar eru notuð (t.d. hvaða vefsíður og hlutar vefsíðna hafa verið heimsótt og hverju hefur verið leitað að).

  • Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar vegna athugasemdar/kvörtunar.

  • Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.

  • Notandaupplýsingar frá netaðgangi, t.d. þegar viðskiptavinur á í vandræðum með að innskrá sig.

  • Nafnlausar tæknilegar upplýsingar sem snúa að þeim tækjum sem notuð eru og stillingar, s.s. tungumálastillingar, IP tölur, vafrastillingar, tímabelti, stýrikerfi, skjástillingar o.fl.

  • Nafnlausar upplýsingar um notkun viðskiptavina, t.d. á hvaða hátt þjónustur voru notaðar, hvernig innskráningu var háttað, hvar og hversu lengi ýmsar síður voru heimsóttar, viðbragðstími, villur við niðurhal, hvernig hægt er að tengjast þjónustum og hvenær farið var úr þjónustum, o.s.frv.

  • Nafnlausar upplýsingar um hvernig vefsíður okkar og aðrir rafrænir miðlar eru notuð (t.d. hvaða síður eða síðuhlutar hafa verið heimsótt og að hverju hefur verið leitað).

  • Nafnlausar landfræðilegar upplýsingar 

Um upplýsingar til þriðja aðila
Í einhverjum tilfellum gætu persónugreinanleg gögn verið færð til samstarfsaðila okkar t.d. þegar kemur að markaðssetningu (prentun, dreifing o.fl.), flutningi, dreifingu, tækniþjónustu og greiðsluleiðum. Gögn sem eru persónugreinanleg eiga alltaf að vera meðhöndluð af þriðja aðila í samræmi við lög og tilgang okkar við gagnasöfnun.

Við gætum einnig þurft að veita stjórnvöldum t.d. lögreglu eða skattayfirvöldum aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum. Að auki gætum við þurft að veita bönkum, korta- og greiðsluleiðafyrirtækjum og flutningsfyrirtækjum aðgang að gögnum sem hægt er að persónugreina. Í slíkum tilvikum eiga þeir aðilar sem fá hjá okkur persónugreinanleg gögn að vinna gögnin í samræmi við lög og reglur um vinnslu persónuupplýsinga.

Um smákökur (cookies)
Það eru tvær tegundir af smákökum. Ein geymir textaskrá í ákveðinn tíma, þar til hún rennur út. Tilgangur hennar er t.d. að segja þér hvað hefur gerst frá því þú heimsóttir síðast. Hin tegundin er svokölluð session cookie, sem hefur ekki dagsetningu. Textaskráin er vistuð tímabundið, á meðan þú ert á vefsíðu og gæti t.d. hjálpað til við að muna tungumálið sem þú ert að nota. Um leið og vafranum er lokað, eyðist textaskráin.

Á ilm.is notum við smákökur til að halda utan um það hvað þú hefur sett í vörukörfuna. Við notum líka smákökur til að halda utan um tölfræði, til þess að hjálpa við þróun síðnanna. Þeim upplýsingum er safnað í samstarfi við þriðja aðila.

Til þess að notast við vefsíður okkar þarf að samþykkja smákökur. Þú getur gert það í stillingum vafrans sem þú notar. Ef þú gerir það ekki, þá getur verið að vefsíðurnar virki ekki sem skyldi.

Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn okkar eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Aðrar spurningar
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Þú getur sent tölvupóst á ilm@ilm.is eða haft samband í síma 6902626 á milli 11-18 alla virka daga.