I L M
ILM er lítið fjölskyldufyrirtæki í Reykjavík sem hannar og framleiðir hágæða ilmkerti.
Kertin okkar eru handgerð og framleidd úr 100% soya vaxi, fyrsta flokks ilmolíum og náttúrulegum bómullarkveik. Framleiðslan er lítil í einu, umhverfisvæn og með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
KERTIN OKKAR
UMHVERFIÐ
Velferð umhverfisins er okkur ofarlega í huga. Því leitumst við eftir að haga framleiðslunni okkar á sem umhverfisvænastan hátt og eru allar pakkningar okkar t.d. endurnýtanlegar. Einnig bjóðum við viðskiptavinum að koma með kertaglösin til endurnýtingar eða áfyllingar með uppáhaldsilminum. Þannig geta kertaglösin okkar gengið í endurnýjun lífdaga sinna aftur og aftur í stað þess að vera hent.